Þessi er vægast sagt glæsilegur! Victoría er kjóllinn sem þú velur þegar dressið má alveg fá smá athygli. Glansandi áferð, fallegar fellingar og há klauf gefa honum þetta fullkomna „vá“ yfirbragð. Paraðu við hæla og flotta eyrnalokka og leyfðu kjólnum að sjá um rest.
- Síður, aðsniðinn kjóll í ljósgylltum lit.
- Glansandi áferð sem grípur ljósið.
- V-hálsmál með krosslögðum fellingum yfir brjóst.
- Breiðir hlýrar og áberandi mittisstykki.
- Fellingar yfir mjaðmir og há klauf að framan.
- Vægast sagt einstakur!