Glæsilegt sett - buxur og toppur!
Þetta sett sko!...Það er vægast sagt gullfallegt og er fullkomið við háa hæla við flott tilefni. Efnið er afskaplega létt í sér með rifflaðri áferð og ljóst á litinn. Efnið er þægilegt í að vera því teygja er í efninu svo það gefur eftir. Toppurinn er með síðar ermar og -V- laga hálsmál sem krossast að framanverðu, nokkuð flegið. Í mitti er vafningsbelti sem vafið er um mittið og bundið eins og hentar, kemur mjög vel út. Í mitti er einnig teygja að innanverðu. Buxurnar eru nokkuð víðar í sniðinu og léttar í sér. Smá teygja er í mitti og toppurinn kemur fallega yfir buxurnar.
Glæsilegt sett sem passar vel við ýmis tilefni!
- Fallegt sett: Buxur og toppur
- Litur: Ljós
- Riffluð áferð á efni
- Efnið gefur smá eftir
- Parast mjög vel við háa hæla
- Stærðir: S/M og M/L