Laura buxurnar eru fyrir daga þegar þig langar að hafa dressið einfalt en alls ekki óspennandi! Camo-mynstrið í jarðlitum grípur augað, á meðan víðar skálmarnar gefa buxunum afslappað og töff yfirbragð. Paraðu þær við svartan topp eins og á myndinni og leyfðu buxunum að njóta sín, eða bættu við peysu fyrir notalegra hversdagsdress. Þessar gera mikið fyrir útlitið án þess að þú þurfir að hafa mikið fyrir því!
- Camo-mynstur í grænum, brúnum og dökkum tónum
- Víðar skálmar
- Hnepping og rennilás að framan
- Vasar að framan
- Skrautól með málmhringjum að aftan
- Stærðir: XS, S, M, L og XL (stærðir eru smávegis í stærra lagi)