Jade kjóllinn er svo sannarlega sumarlegur!
Fallegt mynstur í sumarlegum litum og sniðið mjög klæðilegt. Chiffon efnið er létt í sér og kjóllinn nokkuð sparilegur en hentar vel hvort sem er í brúðkaup og álíka tilefni eða jafnvel dags daglega. Hálsmálið er -V- laga og krossast að framan og í mitti er teygja sem gefur vel eftir. Að framan er klauf sem opnar kjólinn og kjóllinn er fóðraður að innan svo ekki sjáist í gegn. Þessi er vægast sagt fallegur!
Virkilega fallegur kjóll hér á ferð!
- Sumarlegur kjóll
- Fallegt chiffon efni
- Klauf að framan
- Bjartir litir