Fallegur stuttur kjóll með leopard mynstri, virkilega fallegur. Hálsmálið er -V- laga og krossast að framan. Kantur á hálsmáli (kraginn) bylgjast örlítið til, sem kemur mjög vel út. Í mitti er smá rykking sem er teygjanleg svo hann verður aðsniðinn, sem gerir kjólinn mjög klæðilegan. Ermarnar eru með þægilegri teygju í stroffi og það sést örlítið í gegnum þær, sem gerir kjólinn nokkuð sparilegan. Efnið er mjúkt viðkomu og kjóllinn léttur í sér. Létt undirpils er á innanverðum kjólnum, svo ekki sjáist í gegn.
- Efni: 95% Viscose og 5% Elastane
- Lengd: Ca.92cm
- Kemur í einni stærð, sem er ca.S/M (en með örlitlum teygjanleika)
- Með fallegu leopard mynstri
- Módelið er 164cm á hæð