Fallegur kjóll, stílhreinn og klassískur! Kjóllinn kemur yfir aðra öxlina þar sem annar handleggurinn er ber. Efnið er létt í sér og mjúkt viðkomu og gefur aðeins eftir. Kjóllinn er alveg aðsniðinn og efnið er rykkt vinstra megin og klauf er einnig á vinstri hlið. Á hægri hlið er rennilás, sem auðveldar þér að fara í og úr kjólnum. Fallegur kjóll sem passar vel við ýmis tilefni.
- Efni: 95% pólýester og 5% elastane
- Litur: Svartur
- Gefur smávegis eftir
- Stílhreinn og fallegur.