✨Kjólar og fleira fallegt fyrir þín uppáhalds tilefni! ✨ Sendum um allt land!

Skilmálar


Demetra ehf (kt.440123-1040) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar 1-2 virkum dögum eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager verður haft samband við viðskiptavin og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Afhending pantana fer fram með Dropp og Íslandspósti. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Demetra vefverslun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Demetra vefverslun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Ef pantað er fyrir 15.000 kr eða meira fellur sendingarkostnaður niður þegar afhent er með Dropp á Droppstöðvar. Ef pantað er fyrir minna er 15.000 er verðið 800 kr þegar sent er á Droppstöðvar á höfuðborgarsvæðinu en 990 utan höfuðborgarsvæðis. Ef heimsending með Dropp er valin er hún 1400 kr. Einnig er hægt að fá afhent með Íslandspósti í póstbox, á pósthús eða sent heim og er sendingarkostnaður breytilegur eftir því hvaða leið er valin. Ef pantað er fyrir minna en 15.000 kr fer upphæð sendingarkostnaðar eftir sendingarmáta. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef skila þarf vöru, skal senda vöruna á: Demetra ehf, Pósthólf 10039, 110 Reykjavík og senda samhliða tilkynningu í netpósti á demetra@demetra.is. Viðskiptavinur greiðir póstburðargjöld ef vara er endursend til þess að fá aðra stærð eða ef varan hentar ekki af einhverjum ástæðum. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og Demetra vefverslun greiðir allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðir ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara.

Greiðsla

Greiðslu getur viðskiptavinur innt af hendi með greiðslukorti.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.