Forpöntun á vinsæla Imani samfestingnum - afhending 24.-27.nóvember nk!
Mögulega hinn fullkomni spari samfestingur! Pallíettuefnið kemur vel út í þessu glæsilega sniði sem er á þessum fallega samfestingi. Hálsmálið er -V- laga og nokkuð flegið og að aftanverðu er rennilás sem auðveldar þér að smeygja þér í kjólinn. Ermarnar eru síðar og léttir herðapúðar eru til staðar að innan sem auðvelt er að fjarlægja sé þess óskað. Í mitti er áfast belti sem þú vefur utan um þig og bindur fallega, þetta setur flottan svip á dressið. Skálmarnar eru víðar og síðar og fara mjög vel með háum hælum. Efnið er létt í sér og glitrandi og fallegt og hefur teygju í sér og gefur því eftir, samfestingurinn er því einstaklega þægilegur.
Við mælum með þessum! Ath..afhending 24.-27.nóvember nk!
- Svartur, glæsilegur samfestingur
- Fullkominn fyrir jól og áramót
- Belti um mitti sem þú vefur utan um þig og bindur fallega
- Stærðir: Small - 2XL (36-44)
- Vægast sagt flottur fyrir veislurnar!